Leikskólinn
Mánagarður
Foreldrafélag Mánagarðs
Við Mánagarð er starfrækt foreldrafélag og eru allir foreldrar og forráðamenn barna í leikskólanum sjálfkrafa félagar.
Foreldrafélagið stuðlar að góðu samstarfi og samfélagi í kringum leikskólann og stendur fyrir ýmsum viðburðum og verkefnum í þágu barnanna. Félagið hefur meðal annars séð um árlega sveitaferð, bókakaup, jólagjafir fyrir deildir og skemmtiatriði á sumarhátíð.
Greitt er mánaðarlegt félagsgjald sem innheimt er samhliða leikskólagjöldum og er það nýtt til að fjármagna starf og viðburði foreldrafélagsins.
Stjórn foreldrafélagsins er kosin á aðalfundi að hausti.