Umsókn um leikskólavist á Mánagarði

Sótt er um leikskólavist rafrænt á umsóknarsíðu Völu.

Þegar umsókn hefur verið send inn fer barnið á biðlista eftir þeim reglum sem gilda hverju sinni. Foreldrar geta fylgst með stöðu umsóknarinnar í Völu og séð hvar barnið er á biðlista í þeim leikskólum sem sótt hefur verið um.

Haft er samband við foreldra þegar pláss losnar. Þá fá foreldrar upplýsingar um næstu skref, upphaf leikskólagöngu og aðlögun.

Foreldrum er alltaf velkomið að hafa samband við leikskólastjóra ef spurningar vakna um umsóknarferlið, biðlista eða stöðu umsóknar.