Reglur ungbarnaleikskóla stúdenta

1. Skilyrði fyrir leikskóladvöl er að annað foreldri/forráðamaður eða báðir stundi nám við HÍ og ber þeim að skila námsvottorði þar sem fram koma skráðar einingar, við upphaf hverrar annar.
2. Forsendur fyrir leikskólavist eru að foreldrar skili eðlilegri námsframvindu. Námsframvinda telst vera eðlileg ef foreldri lýkur a.m.k. 40 einingum á ári, eða 2/3 hlutum þess náms sem viðkomandi deild eða skor telur vera eins árs nám. Þar af þarf að ljúka a.m.k. 18 einingum á haustönn.
3. Ef foreldri getur af einhverjum ástæðum ekki skilað eðlilegri námsframvindu þarf að hafa samband við leikskólastjóra.
4. Ef sérstakar aðstæður liggja fyrir er hægt að sækja um forgang að leikskólunum. Umsókn skal skilað til leikskólastjóra.
Með umsókn skulu fylgja gögn sem styðja forgang, t.d. læknisvottorð, vottorð frá félagsráðgjafa og/eða greiningarstöð.
5. Skilyrði fyrir leikskóladvöl er að foreldrar barnsins séu ekki í vanskilum við Félagsstofnun stúdenta.

Farið skal með allar umsóknir og upplýsingar sem þeim fylgja sem trúnaðarmál og hvílir þagnarskylda á starfsmönnum Leikskóla stúdenta.