Svefn og hvíld

Á Mánagarði er hvíld á öllum deildum eftir hádegismat, en fyrirkomulag hennar er mismunandi eftir aldri barnanna og deildum.

Yngstu börnin sofa á hvíldartíma en eldri börnin eiga rólega stund þar sem þau liggja eða sitja og hlusta á sögur eða tónlist, skoða bækur eða sinna öðrum rólegum verkefnum.

Hvíld hefst strax eftir hádegismat. Á eldri deildum lýkur henni að jafnaði um kl. 13:00 en á yngri deildum fer lengd hvíldarinnar eftir svefnþörf og svefntíma hvers barns.

Þar sem hvíldartíminn er mikilvæg róleg stund í daglegu starfi biðjum við foreldra og forráðamenn að láta starfsfólk deildarinnar vita fyrirfram ef sækja þarf barn á meðan á hvíld stendur.

Mæting barns í leikskólann á milli kl. 10:30 og 13:00 þarf að vera í samráði við deildarstjóra. Á þessum tíma stendur yfir hádegismatur, undirbúningur fyrir hvíld og hvíld barna og því getur verið erfitt fyrir starfsfólk að taka á móti börnum án þess að raska ró og skipulagi deildarinnar.

Við biðjum foreldra og forráðamenn því að taka tillit til þessa við skipulagningu á komu og brottför barns.