Farsæld barna og Betri borg fyrir börn

Markmið farsældarþjónustu er að börn og fjölskyldur þeirra fái rétta aðstoð á réttum tíma og þurfi ekki sjálf að leita á milli ólíkra þjónustukerfa.

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna leggja áherslu á snemmtækan stuðning, gott samstarf og samhæfða þjónustu þegar barn eða fjölskylda þarf á aðstoð að halda.

Í Reykjavík er unnið eftir verkefninu Betri borg fyrir börn, sem styður við samstarf leikskóla, grunnskóla, frístundastarfs, velferðarþjónustu og annarra sem koma að þjónustu við börn og fjölskyldur.

Tengiliður farsældar

Öll börn og foreldrar eiga að hafa aðgang að tengilið farsældar.


Hlutverk tengiliðar er að vera fyrsti viðkomustaður þegar foreldrar eða starfsfólk telja að barn þurfi frekari stuðning eða þjónustu. Tengiliður getur veitt upplýsingar, leiðbeint foreldrum og aðstoðað við að koma á samstarfi milli þeirra aðila sem þurfa að koma að málinu.


Til tengiliðar má meðal annars leita þegar spurningar eða áhyggjur vakna varðandi:
– líðan barns
– þroska og nám
– félagsleg samskipti
– hegðun
– aðstæður barns eða fjölskyldu
– þörf fyrir ráðgjöf eða frekari stuðning


Ekki þarf að vera um stóran eða alvarlegan vanda að ræða til að hafa samband. Markmið farsældarlaganna er meðal annars að hægt sé að bregðast snemma við og veita stuðning áður en vandi verður meiri.

Tengiliður farsældar í Mánagarði

Kristín Ósk Guðjónsdóttir
Sérkennslustjóri/Director of special education
kristing@fs.is

Foreldrum er alltaf velkomið að hafa samband við tengilið farsældar ef þeir vilja fá upplýsingar, ráðgjöf eða ræða hvort frekari stuðningur gæti nýst barninu þeirra.

Meiri upplýsingar

Nánari upplýsingar um farsæld barna, réttindi barna og fjölskyldna og samþættingu þjónustu má finna hjá Barna- og fjölskyldustofu og á upplýsingasíðum Reykjavíkurborgar um Betri borg fyrir börn.