Afslættir af leikskólagjöldum
Frá og með 1. apríl 2026 gilda nýjar afsláttarreglur Reykjavíkurborgar vegna leikskólagjalda. Eldri afsláttarflokkar falla niður og nýir tekjutengdir afslættir taka við.
Sérstakur námsmannaafsláttur og afsláttur til öryrkja falla niður samkvæmt nýjum reglum Reykjavíkurborgar. Afsláttur einstæðra foreldra tekur einnig breytingum og miðast nú við tekjur.
Afsláttur af leikskólagjaldi miðast við tekjur foreldra/forsjáraðila samkvæmt skattframtali. Afsláttur er veittur af námsgjaldi en ekki fæðisgjaldi.
Einstæðir foreldrar geta sótt um tekjutengdan afslátt af námsgjaldi samkvæmt eftirfarandi tekjuviðmiðum:
– Árstekjur undir 8 milljónum króna: 75% afsláttur af námsgjaldi
– Árstekjur 8–13 milljónir króna: 50% afsláttur af námsgjaldi
– Árstekjur yfir 13 milljónir króna: 40% afsláttur af námsgjaldi
Hjón og sambúðarfólk geta sótt um tekjutengdan afslátt af námsgjaldi samkvæmt eftirfarandi tekjuviðmiðum:
– Árstekjur undir 11 milljónum króna: 40% afsláttur af námsgjaldi
– Árstekjur 11–18 milljónir króna: 20% afsláttur af námsgjaldi
Systkinaafsláttur reiknast sjálfkrafa fyrir börn sem eiga sama lögheimili. Afslátturinn gildir þvert á þjónustu dagforeldra, leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila.
Systkinaafsláttur er 100% af námsgjaldi eldri barna fyrir sama fjölda dvalarstunda og yngra barn. Systkinaafsláttur af fæði er 100% hjá börnum umfram tvö í leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili.
Afsláttur af gjaldi skráningardaga fyrir systkini er 50% fyrir yngra systkini og 100% fyrir þriðja barn.
Ef fleiri en einn afsláttur getur átt við gildir sá afsláttur sem er foreldrum hagstæðastur. Afslættir leggjast ekki saman.
Sótt er um afslátt af leikskólagjaldi í gegnum Völu eftir að barn hefur hafið leikskólagöngu. Umsækjandi þarf að vera með sama lögheimili og barnið.
Afsláttur reiknast samkvæmt þeim reglum Reykjavíkurborgar sem gilda hverju sinni. Afsláttur er ekki veittur afturvirkt nema reglur Reykjavíkurborgar kveði sérstaklega á um annað.
Foreldrar barna með lögheimili utan Reykjavíkur eru beðnir um að snúa sér til leikskólastjóra eða viðkomandi sveitarfélags varðandi reglur um niðurgreiðslu leikskólagjalda og afslætti.