Mánagarður
Opnunartími og dagatal
Mánagarður er opinn:
Eldri deildir (3–6 ára): kl. 7:30–16:30
Yngri deildir (1–3 ára): kl. 8:00–16:00
Foreldrar sækja um ákveðinn vistunartíma fyrir barn sitt í Völu. Mikilvægt er að koma og brottför barns sé innan skráðs vistunartíma, þar sem mönnun leikskólans er skipulögð út frá þeim tímum.
Leikskóladagatal 2026-2027
Leikskóladagatal Mánagarðs er gagnvirkt og þar má finna ýmsa fróðleiksmola og gagnlegar upplýsingar. Leikskóladagatalið er birt með fyrirvara um breytingar og við hvetjum foreldra til að fylgjast reglulega með uppfærslum.
