Leikskólinn Mánagarður var stofnaður 9. september 1996 og hefur Félagsstofnun stúdenta rekið hann frá upphafi með þjónustusamning við Reykjavíkurborg.

Leikskólinn Mánagarður var stofnaður 9. september 1996 og hefur Félagsstofnun stúdenta rekið hann frá upphafi samkvæmt þjónustusamningi við Reykjavíkurborg.

Mánagarður er sjö deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum eins til sex ára. Deildirnar eru aldursskiptar og skiptist leikskólinn í yngri barna álmu og eldri barna álmu.

Í Mánagarði leggjum við áherslu á að skapa hlýlegt, öruggt og hvetjandi umhverfi þar sem börn fá að njóta sín, leika, læra og þroskast á eigin forsendum. Starfið byggir á virku námi, jákvæðum samskiptum og virðingu fyrir hverju barni.

Leikskólinn vinnur eftir HighScope-uppeldis- og menntastefnunni þar sem lögð er áhersla á að börn séu virkir þátttakendur í eigin námi. Börnin fá tækifæri til að velja, rannsaka, prófa sig áfram, taka ákvarðanir og hafa áhrif á eigið nám og daglegt starf.

Fyrirsjáanlegt dagskipulag, gott námsumhverfi og náið samstarf starfsfólks og foreldra eru mikilvægir þættir í starfinu. Markmiðið er að hvert barn upplifi öryggi og tilheyri samfélagi leikskólans, fái tækifæri til að efla sjálfstæði sitt, frumkvæði og félagslega færni og njóti þess að læra í gegnum leik og eigin reynslu.