Dagskipulagið er stundarskrá leikskólans. Innan þess raðast þau verkefni, venjur og viðfangsefni sem leikskólinn hefur einsett sér að vinna með börnunum. Skipulagning og tímasetning daglegra venja gefur starfinu reglubundið og ákveðið form sem skapar öryggi, festu og fyrirsjáanleika fyrir börn, starfsfólk og foreldra.

Dagskipulagið er unnið með hliðsjón af aldri barnanna og samsetningu barnahópsins hverju sinni. Það þarf að styðja við virkt nám, frjálsan leik og þátttöku barnanna í daglegu starfi. Jafnframt gefur það öllum sem koma að leikskólastarfinu skýra tilfinningu fyrir því hvað kemur næst.

Dagskipulagið okkar er að jafnaði eins alla daga. Á öllum deildum er sýnilegt dagskipulag sem styður börnin í að átta sig á deginum og taka þátt í honum af öryggi.

Með sýnilegu dagskipulagi:

Vita allir hvað kemur næst.


Vita börnin hvert þau eiga að fara
öðlast börnin öryggi, sjálfstraust og frumkvæði.


Læra börnin að treysta á dagskipulagið og vita í hvaða röð hlutirnir gerast.


Læra börnin að vega og meta þá valkosti sem þau hafa, framkvæma það sem þau velja og ljúka við það.

Það er mikilvægt að láta börnin vita strax að morgni ef einhver hluti dagsins verður öðruvísi en venjulega. Það getur til dæmis átt við ef veðrið er það slæmt að ekki er hægt að fara út, ef hópastarf fellur niður vegna leiksýningar, ef kennari eða barn er veikt eða ef aðrar breytingar verða á daglegu skipulagi.