Leikskólinn Mánagarður

Leikskólinn Mánagarður er sjö deilda leikskóli í Ásgarðahverfinu, nánar tiltekið á Eggertsgötu 30-34. Síminn er 562-3340 og netfangið managardur@fs.is. Háskólanám er ekki skilyrði fyrir leikskóladvöl og því geta allir sótt um vistun.
Barnahópurinn okkar er nokkuð fjölmennur, hér dvelja 127 börn á aldrinum eins til sex ára og þeim sinna af kostgæfni tæplega 40 starfsmenn. Leikskólastjóri Mánagarðs er Ragnhildur Ýr Jóhannesdóttir ragnhildur@fs.is. Aðstoðarleikskólastjóri Mánagarðs er Tinna Rún Kristófersdóttir, tinna@fs.is.