Nýtt leikskólaár hafið

Nú er nýtt leikskólaár gengið í garð og við hlökkum mikið til þess sem fram undan er.

Þessa dagana eru ný börn að bætast í hópinn, önnur flytja á milli deilda og elstu börnin okkar halda áfram á vit nýrra ævintýra í grunnskólanum.

Það fylgir alltaf ákveðin tregi því að kveðja börn og fjölskyldur sem hafa verið hluti af samfélaginu okkar, en um leið gleðjumst við yfir þeim nýju skrefum sem þau taka. Við óskum öllum þeim sem við kvöddum í sumar innilega góðs gengis á nýjum vettvangi.

Jafnframt bjóðum við öll ný börn og fjölskyldur hjartanlega velkomin til okkar og hlökkum til að kynnast þeim og eiga saman gott og gefandi leikskólaár.

Á síðunni er að finna hinn ýmsa fróðleik sem er nytsamlegur nýjum fjölskyldum, hér er að finna leikskóladagatalið okkar, hér er fróðleikur um það að byrja í leikskóla og svo mælum við með að renna yfir þessar frábæru HighScope hugvekjur.