Mánagarður 30 ára.

Miðvikudaginn 9. september héldum við hátíðlega upp á 30 ára afmæli Mánagarðs!

Í hádeginu fengu börnin hátíðarmat og í kaffinu var boðið upp á ávexti og gómsæta kanilsnúða. Sum börnin skreyttu kort, önnur teiknuðu myndir og góð stemning var í húsinu🎈

Við fengum líka skemmtilega heimsókn frá Leikhópnum Lottu með frábæra sýningu um Gríslíng og Eyrnaslapa. Börnin fylgdust spennt með og sýningin vakti mikla lukku.

Það var dásamlegt að gera sér dagamun saman og fagna Mánagarði með góðum mat, gleði og smá leikhústöfrum 💛

Til hamingju með afmælið, Mánagarður!